Aðalvalmynd

Elva húúú

  • Nafn: Elva Björk Óskarsdóttir
  • Netfang: elva_bj@hotmail.com
  • Kyn: kvk
  • Atvinna: að sinna kallinum bara
  • Hjúskaparstaða: sambandi
  • Um mig: æji þið þekkið mig:) ég er nottla bara ég, bý í Grafarvogi með kallinum, erum allveg að fara að flytja á Keili, er að bíða eftir að fá dóttir mína í heiminn, og síðan bara heldur lífið áfram:)

Auglýsing

29. júlí 2008 klukkan 20:03
hey það eru komnar inn myndir af litla frænda, af bumbus og sólardegi hjá mér Júlíu og Garðari á barnalandið:) tilkynning bara....

www.lillanabba.barnaland.is geeeersvoooo veeeeeeeeeeeeel...

Er í flytibloggi núna er að fara í bumbusmyndartöku hjá Ástu skástu efast ekki um að þetta verði svaka flott, ætlum að drífa þetta af svona áður en að krakka rassgatið kemur í heiminn:)veit um eina sem að fékk nebbla krakkann í heiminn áðiur en myndartakan var híhí Dísa kannastu við þetta;)

whyyyyyy

25. júlí 2008 klukkan 07:55
afhverju ætli það þurfi alltaf að væla yfir ÖLLU sem að er gert hérna á þessu blessaða landi... ég meina halló fylleríislag og það er bara liggur við lagst í grát, stundum er maður nú yfir sig hlessa...

http://visir.is/article/20080724/FRETTIR01/265145702


eða ég skil allavegana ekki afhverju fólk má nú ekki einu sinni semja tónlist nú tildags..

piffff tjáhh hún Ragnheiður biskupsdóttir brókar var með sótt segji ég nú bara hehe



Annars eru gleðitíðindi Eva Guðrún eignaðist strák í morgun 18 merkur og 55 cm:) Verst að Guddann okkar er ekkert svo tölvuvædd svo að ég held að maður þurfi að gera sér ferð til að sjá prinsinn:) Annars býst ég  nú allveg við því að Friðgeir reddi okkur eins og nokkrum myndum;) er það ekki annars???

úfffffffff ALLT saman strákar ég er farin að vorkenna Þóreyju Öddu og minni bara;);););) nóg að gera híhí

EN annars eru þetta rosalega mikil gleðitíðindi fyrir mig að Eva Guðrún sé búin því að vitiði þá hver er næst??? vúppahúúúúú jebb thats míííííííí:) svo fer þetta að koma Eva Dögg á eftir mér með nottla STRÁK og svo jiiii ekki fara í fýlu ef að ég er ekki að fara rétt með að þá held  ég bara að Arna Gerður sé næst með sinn STRÁK.... engar stelpur nema mín og Þórey....:) jebb við Rakel eigum eftir að eiga í nógu að snúast:)

FRÆNDI KOMINN

16. júlí 2008 klukkan 07:37
Jæja þá er biðin á enda:=) Frændi minn er looooksins kominn í heiminn, var að fá sms frá Lindu um að það hafi komið strákur klukkan 6:47 og klukkan er rétt svo hálf 8:):)
En ég ákvað að smella inn fréttunum, svona fyrir þá sem ekki fá sms;) þetta er það eina sem ég veit að hann er looooksins kominn:):)
Núna hlakkar mér BARA til að sjá hann og máta hann veeeiiiiiii:)

ég á lítinn frænda, ég á lítinn frænda ligga ligga lá lá:):)::):

p.s Eva D ég VISSI þetta að serían væri þarna ennþá hahahaha Erna er allveg búin að harðneita fyrir að hún væri ennþá hjá þér híhí, hlakka til að segja henni frá þessu:)

borðun skorðun...

15. júlí 2008 klukkan 15:50
jæja ég er greinlega ekki eins vinsæl hérna og á 123.is:) hvað er það??? Reyndar er ég ekki dugleg við að skoða bloggsíður hjá öðrum á sumrin svo að kannksi það sé sumartíminn;)

Annars er bara allt ágætt að frétta var að koma úr mæðraskoðun, og stúlkan er bara búin að skorða sig og alles, dugleg stelpa;) Reyndar er blóðþrýstingurinn eitthvað hærri en vanalega,og ég á víst að kvíla mig í smá tíma... hvíla mig, pomm pomm, veit ekki allveg hvernig ég á að fara að því sko, ekki samt að mér finnist ég ekki hvíla mig nóg, heldur þarf ég að gera það meira, veit ekki hvernig ég á að fara að því á þessu heimili get ég allveg frætt ykkur á... ekki það að við búum bara hérna 2 og ekki eins og þetta sé eins og svínastía sem ég þarf að vera á fleygiferð að þrífa á allann liðlangann daginn, nei nei alls ekki.!!
Síðan er nottla oft fullt af börnum hérna svona í tíma og ótíma, :)

ÉG ER BARA EKKI ÞESSI ENDALAUSA HVÍLDARMANNESKJA..!!! þó svo að ég viðurkenni það hreint hérna út að ég er orðin MJÖG þreytt á þessari meðgöngu, og langi að hún taki enda bara helst núna....

Ég hef samt nú ekki yfir miklu að kvarta á þessari meðgöngu minni, nema bara það að mér finnst þetta ekkert svakalega spes, og segji ég alltaf að ég ætli ekkert að gera þetta aftur:')
Mér finnst ég reyndar bara búin að vera MJÖG heppin, er komin 35 vikur + 3 daga og ég hef barasta verið stálhraust allann tímann, nema kannksi fyrst, morgunógleði og viðbjóðsleg þreyta og extra mikill pirringur, það er nú bara eins og gengur og gerist held ég... en ég allavegana hleyp upp stigana hjá Önnu og Ylfu, og þær búa á 4 hæð, ókei verð allveg móð en ég tek þetta samt á fartinu, síðan er hoppandi og skoppandi í vörubíl flest alla daga hehe er sko yfirleytt alltaf með Árna í vinnunni, það er allveg ágætt:)
þannig að ég er allveg eiturhress..!!

Nú síðan af Ylfu að frétta er bara ekki neitt, ég er búin að lofa svo mörgum að láta vita hvernig þetta gangi, ég held að frændi minn ætli ekkert að koma út, hann greinlega vill bara vera þarna inni... og hún er búin að bíða síðan í GÆRMORGUN... úfff haaaaalelúja ég væri orðin brjálÖskrandi ekki það að Ylfa Lind frænka mín er sallarróleg yfir þessu... og ég er sko æstari en hún að fá frændann í heiminn hehe ég er að segja satt, hlakka til að mátann og svona... en ég verð með fréttirnar tilbúnar og verð örugglega búin að fara og skoðann og setja inn mynd af honum handa ykkur áður en að Ylfa er komin í brókina aftur hehe:) en þetta eru allavegana seinustu fréttir, og Anna lofaði að vera í beinu sambandi við mig híhí:)

já ég stoppaði aðeins að skrifa svo að það bara datt allt útúr hausnum á mér.... en ég ætla bara að smella Desperate housewifes í, og "HVÍLA" mig... eeeeeeeeeeelska þessa þætti meira en ALLT annað... er að verða búin með 2 seríu og þá ætla ég að horfa aftur á 3 þó svo að það sé ekkert svakalega langt síðan ég horfði á hana... en veit einhver um 1 seríuna mína... mér eiginlega bráðvantar hana???? nenni ekki að downloda henni, þarf samt reyndar að downloda númer 4 svo að anskotinn hafi það híhí...

Eva Dögg kannastu eitthvað við 1 seríuna mína, er hún nokkuð enn í höndunum á þér elskan;)

ást er...

12. júlí 2008 klukkan 22:28

ég er búin að finna út nýtt fyrir love is myndirnar, sem eru ótrúlega krúttulegar myndir... það er:
 
ást er að segjast elska hann/hana á msn
ást er að segjast elska hann/hana á myspace
ást er að segjast sakna hans/hennar á msn
ást er að segjast sakna hans/henna á myspace

engin skot sko á neinn sko, best að láta það fylgja með:)

Annars er ég bara í pössun hjá Önnu, Ylfu og Júlíu, Árni fór á Sigló og ég bara hreinlega nennti enganvegin með.. er búin að vera í náttfötunum síðan í gærkvöldi barasta... enda er ég orðin sáraþreytt kona...

eflaust veltiði fyrir ykkur "pössun"... jámm eftir að ég var orðin óvön því að vera ein finnst mér ógeðslega leiðilegt að vera ein... og plús það að Árni var útí garði um daginn og það smelltu sér hjón á spjall við hann sem að búa við hliðina á okkur og þurftu að tilkynna honum það að gaurinn sem að bjó þarna á undan okkur hafi verið svakalegur dópisti og að hann hafi fyrirfarið sér þarna í íbúðinni... uuhhuuummmmmmmmmmm NÆS TÚ NÓ!!!
og Árni nottla þurfti að segja mér þetta áður en hann fór... jebb þessi elska...!!! Sagði samt ætti ég að segja þér þetta núna eða eftir að ég e kem heim??? og ég er nottla snarforvitin og vildi fá að vita hvað hann meinti með þessu...!!! Fallega,.... manni er nú ekkert voðalega sama sko!!

En ég fer að flytja en það er ekki fyrren sko 1 sept... í Treelane 1111... jebb þetta er nýja heimilisfagnið okkar... hehe það reyndar minnkaði heilmikið í kvíðahnútnum að Dísin er bara að fara að flytja líka og bara víst í sömu blokk... þannig að það er sjálfsagt hægt bara að hægt að fara að gera þátt um seinheppnu húsmæðurnar í Treelane... ekki visteria lane híhí:) Ég held að ég gæti verið Susan... ég og Árni vorum að horfa á desperate á fimmtudaginn þegar að Susan ákvað að skýra barnið ekki eftir afa Mike hehe... og þá heyrðist í Árna.. þetta væri þú allveg líkleg til að gera:)
Reyndar tók ég próf á desp síðunni og þar fékk ég út að ég væri Gabrielle... hmmmm held samt ekki sko:)

jæja ég ætla að leggjast meira í letina, hef nákvæmlega EKKERT að segja svo að.....

breytingar, skreytingar....

06. júlí 2008 klukkan 17:42
jebb, jebb... svo er nú víst að við hjónaleysin erum víst að fara að flytja inní Keflavík bara núna um mánaðarmótin.... haaaalelúúúúja!! Ég veit samt ekki allveg hvernig þetta á eftir að enda allt saman, þið megið allveg búast við því mínir kæru vinir í höfuðborginni að ég verði einhversstaðar fastagestur barasta híhí, Árni er að fara í skólann í haust og við fengum íbúð uppá velli og erum að leigja þá á 55 þús kjeeeeell á mánuði sem að er allveg 80 þúsund ódýrara heldur en hérna..
Maður er svona bæði spenntur og ekki spenntur, mér líkar svo hrrrrriiiikalega vel við mig hérna í Grafarvoginum:)
En þetta á samt eftir að vera örugglega stórfínt, þá verðum við búin að flyjta og koma okkur bara fyrir og svona áður en daman kemur í heiminn, svo að það er bara aldrei að vita að maður fæði bara í Keflavík!!!!mamma segjir að það hafi verið stórfínt að unga mér og Didda út þar, svo að það er bara aldrei að vita nema maður skelli sér á það að rembast í Kef;)


En núna eru bara 6 vikur þangað til stúlkan á að koma í heiminn og ég er bara orðin hálf stressuð, ég er nottla allveg einkar spes og er með akkúrat núna í seinustu vélinni... höhömmmm hehe, búin að kaupa kommóðu og svona ykkur að segja að þá setti ég hana saman aaaaaaaaallveg sjálf.. (hef alltaf sagt og segji enn... þarf ekkert karlmann í líf mitt) og Árni sat og horfði á mig og flissaði af mér:) jebb góður maður, mjöööööööög góður maður;)
og fyrst að kommóðan var komin þarna saman inní herbergi, sá ég bara ekkert annað í stöðunni en að þvo og brjóta saman í hana:) Þetta er fínt bara:)

Mér finnst eitt doltið sneddý í fyrra eða hittífyrra fór ég til miðils, og ég hef alltaf sagt að ég ætla bara að eignast 1 barn, finnst það allveg nóg, og miðillinn sagði við mig að ég myndi eignast 3, þetta er eitthvað sem að ég hef oft hugsað um, því að ég vil bara eignast 1, það er allveg nóg fyrir mig, síðan bara aaaahhhhhhhh þegar að daman mín er komin í heiminn þá eru þessi 3 bara komin, ég meina þó ég eigi ekki Andreu og Garðar að þá á ég þau samt, allavegana smá:)


Annars er æææægilega lítið að frétta nema það að við erum að fara að pakka saman og flytja í Kef... úfff ég er með smá kvíðahnút samt eitthvað í maganum fyrir því, veit ekki afhverju, en þetta verður sjálfsagt bara fínt sko!! Árni tekur rútu í bæinn, fær meira að segja frítt í hana, og þá verð ég með fjölskyldubílinn heima (3 dyra yarisinn) og get þá bara brummað í bæinn ef það koma mikið af tárum:)

Helgin var jú allveg stórfín, svaka róleg og rómó bara, mamma kom í heimsókn á laugardaginn og hún brunaði uppí bústað til Ylfu og Önnu í Hvalfirði og ég, Árni, Helgi og Diddi fórum að veiða í Hvammsvík, og ummmm hvað það var ógeð næs, liggja bara í grasinu, og kela og knúsast hehe;) og engin læti bara smá vindhljóð, og fuglasöngur;)
Síðan þegar við vorum búin að fá nóg af rólegheitunum, fórum við uppí bústað og grilluðum tonn af kjetmeti, og síðan vildi Júlla nottla líka fá að veiða smá fisk, svo við röltum niður að vatni með rassarófuna MÍNA!!! (hún bendir sko alltaf á MIG þegar er spurt hver á hana;););););) og leyfðum henni aðeins að veiða líka.... síðan vorum við bara komin um 10 leytið og sjónvarpskúr tók þar við, svo að þetta er nú ekki búið að vera neitt ææægilega erfiðishelgi neitt...

Nú síðan átti nottla Ylfa mín að eiga núna á laugardaginn, en hún var bara í góðu yfirlæti uppí bústað... hún er eeeeeeeeeekkert stressuð yfir þessu, ég var eitthvað útúða hvað ég væri alltaf fljót að mér og svona og væri bara að verða búin að þvo og svona, kella bara sallíróleg... piiifff Elva mín ég er ekki einu sinni búin að þvo eina vél.. hehehehehhe greinlegt að ég hafi fengið fljótfærnisgenin úr fjölskyldunni:) En ég vona samt að litli frændi minn fari nú að láta sjá sig svo ég geti mátað hann aðeins:)


jæja komið flott og gott í bjeli... er að hugsa um að fara útá pall og reyna að tana mig eitthvað:)

naunau léleg...

02. júlí 2008 klukkan 09:38
jebb æ nó búin að vera ógeð léleg að rita nðiur.... ef ég geri það ekki samstundis og eitthvað spennandi gerist að þá bara gleymi ég öllu sem að hefur gerst.... sama hvursu spennandi það er!! Ekki gott...
Vandamálið er bara að hleðslutækið af tölvunni minni var ónýtt og ég komst aaaagalega lítið á netið, síðan er ég bara búin að vera að brallast með Árna í vinnunni og liggja í leti þar á milli..

Annars átti ég slökunarhelgi mamma kom og var hjá mér því Árni fór á Sigló með krakkana og reyndar þyrftumst við mæðgur á milli búða og kjeeeellingin verslaði smá, líka handa mér sko og lillunni... síðan heyrðist alltaf í henni jæja´hún er búin að fá nóg núna frá mér og síðan nánast í sömu andrá heyrðist jiiii Elva sjáðu, gvuð hvað þetta er sætt.. eigum við ekki að kaupa hí hí..Hlæjandi tjáhhh svona eru bara þessar tilvonandi ömmur:)
Nú á laugardaginn á var slegin upp heljarinnar grillveisla hjá Lindu og sjiiiiiiiii ég held að ég hafi án djóks troðið í mig tonn af læri, þetta var svo gott... síðan skutlaðist ég aðeins um með Simba og við mæðgur komum við og hóst hóst keyptum okkur snakk og kókosbollur til að troða í við sjónvarpinu... ekki eins og það hafi verið troðið nóg í grillinuHissa



Annars er bara lítið að frétta... er að verða búin að ná endum saman í að krakkinn megi koma í heiminn, keypti svaka fína kommóðu í ikea svo að það er eiginlega bara eftir að þvo fötin og ganga frá þeim... síðan ætlaði ég nú líka að pússa rúmið aðeins upp og fiffa það aðeins til, þá er þetta bara að verða reddý sko...!



En úr einu í annað.... ég hef hitt ansi sjúkt fólk á lífsleiðinni og þá eru það mjöööög mismunandi sjúkleikar, bæði mjög alvarlegir og síðan bara svona nett;) EN HVAÐ er samt málið með gaurana sem að fóru þarna í fjölskyldugarðinn og voru að fikta við leiktækið þarna???????? ég er bara ALVARLEGA kjaftstopp.....

jæja ætli ég verði ekki að fara að koma mér á fætur og fara að snúast í þessu fæðingarorlofi... aaahhhhh neeeeenn'ekki þessu veeeseni, átti samt að vera búin að þessu sko, en það var nottla ekki hægt að fræða mann neitt um það, ég fékk ekki þá summu sem ég er vön að fá útborgaða og hringdi nottla bara í mínu rólega og tjekkaði á hvað væri nú um að vera... já, og svarið var bara.... að ég ætti að vera farin að fágreitt frá fæðingarorlofssjóði afþví að settur tími er 14 ágúst..... þá eru það bara reglurnar og ég átti bara að vita þaðÖskrandi ooohh ég ÞOLI ekki svona að manni getur ekki bara verið SAGÐIR hlutirnir svona í tíma.............. ég gæti stundum æltÖskrandi 

ha ég GUFA????

25. júní 2008 klukkan 22:25
Ég er svo mikill lúði að það hálfa væri nóg...... Enda ekki að ástæðulausu að ég sé stundum kölluð GUFAN...

Þannig er mál með vexti að hann Garðar litli er sko 1 í DAG...

sjáiði sæta guttann


P1000455.jpg gard picture by elvabj

P1000288.jpg picture by elvabj



og já sko híhSkömmustulegur roðn ég lít eitthvað á símann í gær og bara hmmm já á ekki Garðar afmæli í dag... og segji síðan við Árna bíddu á ekki Gassi litli afmæli í dag og hann bara HA Gassi ég veit það ekki... ég allveg þvílíkt hissaHissa ÁRNI GEIR... GARÐAR, þú veist Garðar litli... og hann bara jááá minn já jú jú það er í dag, og ég nottla rauk beint í tölvuna og sendi honum svaka fína afmæliskveðju á barnalandi.. hehe.... og sko fremst á síðunni þeirra stendur sko 25 júní ekki 24... ég spáði ekkert í því... Hefði samt kannksi átt aðeins að hægja á mér, ég spáði síðan ekkert í þessu neitt meira sko... fyrren að Árni segjir í dag eitthvað að pabbi hans hafi hringt til að óska honum til hamingju með Garðar og ég sver það ég roðnaði.... og fékk svona skömmustunarsvip á mig og langaði reyndar að slá Árna sko... ég neita því ekki.... Á HANN AFMÆLI Í DAG?????? já já... akkuru, skrifaðiru á barnaland í gær kannksi...?? mjááááááá... ÞÚ SAGÐIR!!!! nsnanananananana..

ég get samt allveg kennt honum um þetta er það ekki;)

Fólk bara ahhh geðveikt glötuð gella veit ekki einu sinni hvenær barnið á afmæli hehehehehe djók í brók:)

En ég afsakaði mig nú í gestabókinni aftur áðan svo að ég held mér verði allveg fyrirgefið... svona í þetta sinn, tek þetta geðveikt nærri mér... held að hormón séu eitthvað að hrella mig í alvöru... vanalega hefði ég bara sprungið úr hlátri og hugsað oohhh týýýýpísk Elva...

svo að ekkert láta ykkur bregða og vera súr útí mig ef ég skildi gleyma afmælisdögum eða bara ákveða að þið hafi fæðst einhverjum dögum fyrr:) hahahaha



p.s mér finnst síðan mín bara eitthvað svo tómleg að ég verð að segja ykkur frá öllu núna sem að kemur fyrir mig:) og ég VISSI að Eva D myndi verða ógeðslega ánægð að ég myndi gera nýja síðu;) þetta er ALLT gert fyrir hana

daralíraríræææææ

25. júní 2008 klukkan 09:23
úfff ég held svo innilega að ég eigi ekki eftir að hlæja aftur næstu vikurnar.... Við vinkonurnar fórum út að borða í gærkvöldi, svona fyrst að Eva Gudda Gjé var í bænum og hittumst við á fridays ég, Eva Dögg, Alma, Erna, Rakel, Ylfa, Eva G og Snævar, maturinn var fínn sko, en þjónustan allveg afbragðsléleg!! Enda fengum við frían desert hehe:) Fórum aðeins að rifja upp gamla tíma og svona Skömmustulegur og sjeeeeettt hvað við vorum steiktar hérna í denn.... eða erum bara yfir höfuð... held að  engin af okkur hafi skánað neitt ægilega mikiðHissa híhí.. allavegana að þá voru nokkrir á Fridays og sátu svona rétt við hliðina á okkur og ég sá ekki betur en að fólk bara skóflaði í sig matnum og lét sig síðan hverfa... ótrúlegt hvað allir voru fljótir að fá matinn sinn og láta sig hverfa miða við þjónustunua þarna iss pisssss....


Eva Dögg heimtaði endilega að taka mig með og þegar við settumst í bílinn á leiðinni heim að þá vildi ég endilega koma við á MC donalds... já ég meina maður bara hakkar endalaust í sig þegar maður er preggó..... ókei ókei... ég varð að gefa honum Árna skinninu að borða eitthvað.. en Eva var samt handviss um að ég væri að fara að borða þetta sjálf hehe....Hlæjandi

Annars hef ég ææægilega lítið að segja svosem núna, nema að ég fékk svona úppasííí í gærkvöldi, að mér langar innilega að hætta við þessar barneignir allar saman..... þar sem við sátum 4 óléttar af 7 stelpum og Rakel nýbúin að eiga og hún rétt búin að ákveða hvað hún ætlaði að fá að borða og síminn hringir og þá var Þórey litla bara allveg crazy crazy.. svo að Rakel þurfti að stökkva heim til að gefa....... úfffffff sviti og tár...!! Semsagt eftir 9 mánuði með þetta hangandi framan á sér og forljótur er greinilega ekki allveg nógur tími til að grýta krakkanum í pabbann.... og ég sem að ætlaði að skella mér í að koma barninu í heiminnn grýta í Árna og segja bara jæja góði vertu blessaður sjáumst eftir 9 mánuði, þú sérð bara um þetta ég ætla að negla mér á djammið ;) nei ókei kanksi ekki allveg en halelúja það sem að er ekki lagt á mann við að eignast eitt barn.... svo eru kallarnir að tala um okkur konurnar hvað við séum alltaf tuðandi og tautandi... sko t.d ef að mér finnur einhversstaðar til eða nenni ekki að vera preggó lengur þá kemur svona AAAAAAARRRRGGGGGGG tónn í mig anskotans helvíti... og verð frekar reið... ekki svona vælutónn, búhúúúúúúú mér finnur svo til Gráta Gráta grát grát sniff sniff EN HINSVEGAR þegar Árni er eitthvað slappur þá e rþað NÁKVÆMLEGA svona... EEEEELVA viltu gefa mér að drekka, uuhhhuuuuuuuu búúú´hhhhúúúú ég er svoooooo slappurGráta

jaaahaááá svo er talað um okkur kvensurnar... vandamálið er bara að við erum hörkutól og karlmenn eru bara lítil sæt krútt hóst, hóst....


æji ohhhh ég þarf víst að hætta núna, var einmitt að komast í gírinn hérna, Árni er að koma og sækja mig, þarf að fara að leika við hann í vinnunni:) aðeins að stjórna til enda kallar hann mig Elva verkstjóri híhí ææææ lææææææækkkkkkkk

lots of loveKoss

Jibbýkóla;-)

24. júní 2008 klukkan 12:26
Suss, suss mín bara komin með nýja síðu;-) er svo mikil bóbatík að ég hreinlega tímdi ekki að borga af 123.is síðunni... Eruði ekki ógeð ánægð híhí... Þetta á sjálfsagt eftir að enda í einhverju gremjukasts óléttubloggum hérna, er allveg gjörsamlega komin með vibba að hafa þessi aukakíló hangandi utan á mér og fá ekki minn svefn, en c.a 7 vikur til stefnu:-D en ætla bara að hafa þetta stutt svona til að byrja með, síðan er nottla harðbannað að kvitta ekki!! Guð geymi ykkur

Atburðarteljari

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...